Silja Rut
Silja Rut lauk sveinsprófi í ljósmyndun í október 2009 með ágætiseinkunn og er hún mætt galvösk til starfa.
Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Sund vorið 2005. Þaðan lá leiðin í Iðnskólann í Reykjavík þar sem hún stundaði nám á Listnámsbraut skólans. Í framhaldi af því skellti hún sér í ljósmyndun og sér ekki eftir því.
Silja Rut hefur áhuga á flestum sviðum ljósmyndunar þó að portretið eigi þó hug hennar allan þar sem því fylgir fjölbreytt og skemmtileg samskipti við fólk á öllum aldri.
Samhliða vinnunni hjá Ljósmyndum Rutar stefnir Silja Rut á meistaranám í faginu næsta vetur.